Hoppa yfir valmynd
15. janúar 2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

S&P hækkar lánshæfiseinkunn ríkissjóðs

Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard og Poor‘s tilkynnti í dag um hækkun á lánshæfiseinkunn fyrir langtímaskuldbindingar Ríkissjóðs Íslands úr BBB í BBB+. S&P hefur einnig staðfest óbreytta einkunn til skamms tíma sem A-2.

Í fréttatilkynningu S&P kemur fram meðal annars að ákvörðun um hækkun lánshæfismatsins taki fyrst og fremst mið af árangri stjórnvalda frá því í júní 2015 við lausn vandamála sem staðið hafa í vegi fyrir losun fjármagnshafta. Þá gerir S&P ráð fyrir að skuldir ríkissjóðs og vaxtagreiðslur lækki á næstu fjórum árum.

Frekari hækkun á lánshæfismatinu er háð því að höft verði afnumin án þess að viðskiptajöfnuður eða fjármálastöðugleiki raskist. Einnig gæti lánshæfiseinkunnin hækkað ef tekst að selja eignir úr stöðugleikaframlagi hraðar en áætlað er og afraksturinn nýttur til að greiða niður skuldir ríkissjóðs. Á hinn bóginn gæti lækkun orðið ef launahækkanir valda efnahagslegum óstöðugleika, losun hafta tefst eða veruleg lækkun gjaldeyrisforða leiðir til þrýstings á gengi krónunnar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta