Iðnaðar- og viðskiptaráðherra ræddi samstarf og ábyrga auðlindanýtingu á norðurslóðum
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tók í dag þátt í norðurslóðaráðstefnunni Arctic Frontiers í Tromsö í Noregi.
Ráðherra ávarpaði ráðstefnuna og ræddi um mikilvægi samstarfs um ábyrga auðlindanýtingu á norðurslóðum, hvort sem væri í orkumálum, iðnaði, ferðaþjónustu eða nýtingu fiskistofna.
Ráðherra rakti meðal annars auðlindastefnu Íslendinga, áskoranir vegna loftslagsmála á svæðinu, mögulega nýtingu Drekasvæðisins til olíu- og gasvinnslu, tækifæri tengd nýrri siglingaleið um norðurslóðir og mikilvægi Norðurskautsráðsins til ákvarðanatöku og samstarfs, en ráðið fagnar nú 20 ára starfsafmæli. Þá ræddi ráðherra mikilvægi nýsköpunarstarfs til að ná markmiðum í orku- og loftslagsmálum.
Ragnheiður Elín greindi jafnframt frá nýrri skýrslu um hagkvæmni þess að tengja raforkukerfi Grænlands, Íslands, Færeyja og Noregs með sæstrengjum.
Síðar í dag mun ráðherra heimsækja skrifstofur Norðurskautsráðsins og funda með ferðamálayfirvöldum í Tromsö.
Ráðherra flytur ræðu á Arctic frontiers
- Skýrslan:„North Atlantic Energy Network project“
- Nánar um skýrsluna á vef Orkustofnunar