Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir styrkumsóknum
Ráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um styrki af fjárlögum til ýmissa verkefna á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar.
Framlögum þessum er einkum ætlað að styðja við uppbyggingu á starfsemi og verkefnum fyrirtækja, samtaka og einstaklinga, ekki síst við upphaf þeirra, sem og að stuðla að uppbyggingu og eflingu atvinnulífs, nýsköpunar og atvinnuþróunar.
- Nánar upplýsingar má finna í auglýsingunni hér