Öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni - frumvarpsdrög til umsagnar
Á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafa verið sett upp meðfylgjandi drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði sjávarútvegs (öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni). Frumvarpsdrögin fara nú í opið samráðsferli með birtingu á vef ráðuneytisins þar sem öllum gefst kostur að kynna sér efni þeirra og beina athugasemdum sínum og ábendingum til ráðuneytisins, en vinnuhópur fulltrúa ráðuneytisins, Fiskistofu og Hafrannsóknastofnunar hefur unnið að undirbúningi frumvarpsins. Að því loknu verður farið yfir allar athugasemdir og þær hafðar til hliðsjónar við undirbúning endanlegs frumvarps, sem fyrirhugað er að mælt verði fyrir á yfirstandandi löggjafarþingi. Þá liggja einnig fyrir til kynningar drög að reglugerð um sama málefni.
Veittur er frestur til að gera athugasemdir við drögin til og með 29. febrúar 2016. Óskað er eftir að athugasemdir verði settar skilmerkilega fram og með vísan til tiltekinna greina frumvarpsins, þegar það á við. Athugasemdir sendist í tölvupósti á [email protected] með efnislínunni: „Frumvarp til breytinga á lögum á sviði sjávarútvegs – öflun sjávargróðurs í atvinnuskyni“. Að sjálfsögðu er einnig tekið við athugasemdum sem berast bréflega.
Kynningarfundur um efni frumvarpsins verður haldinn miðvikudaginn 24. febrúar 2016, kl. 13 í húsi atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 1. hæð. Eru allir áhugamenn um frumvarpið hvattir til að mæta á fundinn.