Nýr bakhjarl Hins íslenska bókmenntafélags
GAMMA Capital Management og Hið íslenska bókmenntafélag skrifuðu undir samstarfssamning í dag þess efnis að GAMMA gerist bakhjarl félagsins til næstu fjögurra ára og styrki félagið um 20 milljónir króna á því tímabili. Meginmarkmið samningsins er að styðja við útgáfu félagsins og gera því kleift að halda upp á afmælisárið með sérstökum viðburðum og útgáfustarfi, sem og að efla starf þess til framtíðar litið. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra flutti ávarp á kynningarfundi í tilefni af undirritun samstarfssamningsins.
Hið íslenska bókmenntafélag var stofnað árið 1816 og hefur starfað óslitið síðan og fagnar því tveggja alda afmæli á árinu. Tilgangur Bókmenntafélagsins í þau 200 ár sem það hefur starfað er að styðja og styrkja íslenska tungu, bókvísi og menntun og heiður hinnar íslensku þjóðar, bæði með bókum og öðru eftir því sem efni þess fremst leyfa. Félagið hefur gefið út tímaritið Skírni frá árinu 1827 og er það eitt elsta menningartímarit á Norðurlöndum.
Á myndinni eru Jón Sigurðsson forseti Hins íslenska bókmenntafélags, Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Gísli Hauksson forstjóri GAMMA Capital Management
Í fréttatilkynningu frá Hinu íslenska bókmenntafélagi segir meðal annars:
Jón Sigurðsson, forseti Hins íslenska bókmenntafélags, sagði við undirskrift samningsins: „Það er mikilvægt fyrir félag eins og bókmenntafélagið að fá stuðning frá atvinnulífinu enda er hlutverk félagsins að styðja við íslenska tungu með bókaútgáfu og viðburðum til menningaauka sem gefa ekki endilega fjárhagslegan ábata. Ég vil þakka GAMMA fyrir þennan höfðinglegan stuðning. Það hefur vakið athygli að GAMMA hefur um skeið styrkt Sinfóníuhljómsveit Íslands með rausnarlegum hætti og heldur nú áfram á þeirri menningarbraut með stuðningi sínum við Bókmenntafélagið. Þetta er fordæmi til eftirbreytni.”
„GAMMA hefur í gegnum árin stutt ötullega við listir og menningu og við teljum mikilvægt að standa vörð um þessa elstu menningarstofnun landsins og þann menningararf sem fólginn er í starfsemi hennar. Það er því mikill heiður fyrir okkur að gerast bakhjarl Hins íslenska bókmenntafélags,“ sagði Gísli Hauksson, forstjóri GAMMA Capital Management.
Hið íslenska bókmenntafélag
Hið íslenska bókmenntafélag var stofnað árið 1816 og tók við hlutverki Hins íslenska lærdómslistafélags sem stofnað var 1779. Félagið hefur því starfað í tvær aldir. Bókmenntafélagið hefur staðið fyrir bókaútgáfu sem er fremur fallin til menningarauka en efnalegs ábata. Félagið er útgefandi Skírnis, Tímarits bókmenntafélagsins, og Lærdómsrita bókmenntafélagsins auk fjölmargra bóka á ýmsum sviðum menningar og fræða í samræmi við tilgang félagsins. Félagið hefur alla tíð lagt sérstaka rækt við sögu landsins, tungu þess og bókmenntir og jafnframt að tengja Íslendinga við hið besta í menntun og vísindum með öðrum þjóðum.
GAMMA Capital Management
GAMMA Capital Management var stofnað árið 2008 og starfar sem rekstrarfélag verðbréfasjóða. GAMMA er með starfsemi í Reykjavík og London.
Nánari upplýsingar veita;
Jón Sigurðsson, forseti Hins íslenska bókmenntafélags
S.861 1704
Netfang: [email protected]
Gísli Hauksson, forstjóri GAMMA Capital Management
s. 8420745
Netfang: [email protected]