Hoppa yfir valmynd
23. mars 2016 Atvinnuvegaráðuneytið

Reglulegt millilandaflug eflt á landsbyggðinni

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun að veita 170 m.kr. til Flugþróunarsjóðs á þessu ári og jafnframt er gert ráð fyrir að sjóðurinn hafi 300 m.kr til ráðstöfunnar á ári næstu ár. Markmiðið með sjóðnum er að koma á reglulegu millilandaflugi um aðra flugvelli en Keflavík.

Þann 30. október sl. samþykkti ríkisstjórn Íslands að fela iðnaðar- og viðskiptaráðherra að hefja undirbúning að stofnun flugþróunarsjóðs og byggir samþykktin á tillögum nefndar sem forsætisráðherra skipaði um aukna möguleika í millilandaflugi.

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra leggur á það áherslu að sjóðurinn skuli settur á laggirnar strax á þessu ári enda styðja markmið hans áhersluþætti í Vegvísi í ferðaþjónustu, sér í lagi þá áherslu sem lögð er á dreifingu ferðamanna.

Sjö manna stjórn verður yfir sjóðnum og skipar iðnaðar- og viðskiptaráðherra formann án tilnefningar. Aðrir stjórnarmenn verða tilnefndir af forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, Markaðsstofu Norðurlands, Austurbrú, Isavia og Íslandsstofu. Stjórnin ber ábyrgð á að úthlutanir sjóðsins samrýmist ríkisaðstoðarreglum EES-samningsins og þá skal hún setja sér starfsreglur til samræmis við tillögur nefndarinnar.

Ráðuneytið mun á næstu dögum óska eftir tilnefningum fyrrgreindra aðila í stjórn sjóðsins en gert er ráð fyrir að hún geti tekið til starfa um miðjan apríl.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta