Hoppa yfir valmynd
1. apríl 2016 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Nám í alþjóðlegum menntaskóla í Noregi

Einstakt tækifæri á námi til stúdentsprófs í alþjóðlegu umhverfi. Mennta- og menningarmálamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um skólavist við Alþjóðlega menntaskólann, Red Cross Nordic United World College (RCNUWC) í Flekke, Noregi.

 Mennta- og menningarmálamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um skólavist við Alþjóðlega menntaskólann, Red Cross Nordic United World College (RCNUWC) í Flekke, Noregi.  Skólinn er hluti af alþjóðlegu skólasamtökunum United World Colleges (UWC), sem reka 15 skóla í 15 löndum. UWC er í fararbroddi alþjóðlegrar menntunar til stúdentsprófs, með það að markmiði að menntun ungmenna með ólíkan menningarbakgrunn styrki stoðir skilnings á milli þjóða og menningarheima.

Nám við skólann í Noregi tekur tvö ár og lýkur því með viðurkenndu alþjóðlegu stúdentsprófi, International Baccalaureat Diploma (IB). Kennsla fer fram á ensku. Skólastarf við RCNUWC leggur áherslu á að nemendur kynnist málefnum og viðfangsefnum  samtímans, og eru sérstakar áherslur hans á umhverfis-, samfélags og mannréttindamálefni. Skólinn á í samstarfi við Rauða Krossinn og Norðurlöndin, sem eiga aðild að stofnun hans.

 Íslensk stjórnvöld eiga aðild að rekstri skólans og býðst skólavist fyrir einn nemanda. Nánari upplýsingar má finna á vef skólans: uwcrcn.no  og á Facebook síðunni UWC Ísland

 Auglýst er eftir umsækjendum um skólavist fyrir skólaárið 2016-2017. Umsækjendur skulu hafa lokið sem svarar einu ári í framhaldsskóla, hafa gott vald á ensku og vera á aldrinum 16-18 ára. Væntanlegur nemandi þarf sjálfur að greiða fargjöld.

 Umsóknarfrestur er til  1. maí 2016.

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta