Grásleppuveiðidögum fjölgað úr 20 í 32
Í reglugerð nr. 202/2016 um hrognkelsi sem kom út 4. mars 2016 voru grásleppuveiðileyfi hvers báts gefin út til 20 samfelldra daga til bráðabirgða.
Samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar er ráðlögð hámarksveiði á grásleppu 6.800 tonn á vertíðinni 2016. Mikil óvissa er ævinlega um aflabrögð við grásleppuveiðar. Grásleppuvertíðin í ár fer afar vel af stað, afli hefur verið góður og virkum grásleppuleyfum fjölgaði lítillega milli ára.
Með hliðsjón af framansögðu hefur ráðuneytið ákveðið að fjölga dögum við grásleppuveiðar úr 20 í 32 með reglugerð sem gefin verður út í dag. Þar með verða veiðidagar jafnmargir og þeir voru í fyrra, en þá veiddust um 6.400 tonn af grásleppu. Dagafjöldinn nú er miðaður við að lítil hætta sé á að heildarafli verði umfram ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.
.