Jafnréttissjóður Íslands - umsókn um styrk
Jafnréttissjóður Íslands var stofnaður með samþykki þingsályktunar 1009/2015 í tilefni af 100 ára kosningaréttarafmæli íslenskra kvenna. Megintilgangur sjóðsins er að fjármagna eða styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu. Jafnréttissjóður Íslands nýtur framlaga af fjárlögum í fimm ár, 100 milljónir króna á ári, frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2020. Úthlutað verður úr sjóðnum 19. júní ár hvert.
Umsóknarfrestur fyrir árið 2016 rann út klukkan 16.00 fimmtudaginn 26. maí 2016.
Umsóknareyðublað
Vakin er sérstök athygli á að umsækjendur sækja um styrk á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins - „Mínar síður“. Þetta fyrirkomulag er til hagræðis fyrir umsækjendur og eykur jafnframt öryggi við móttöku og meðferð umsókna.
- Mínar síður - Jafnréttissjóður Íslands - umsóknareyðublað
- Leiðbeiningar um notkun umsóknarvefs
- Nánari upplýsingar um Jafnréttissjóð Íslands