Hoppa yfir valmynd
17. maí 2016 Atvinnuvegaráðuneytið

Mælt fyrir frumvarpi til laga um breytingu á búvörulögum, búnaðarlögum og tollalögum

Kýr
Kýr

Gunnar Bragi Sveinsson sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra mælti í dag fyrir breytingum á búvörulögum, búnaðarlögum og tollalögum en þessar breytingar eru forsenda nýgerðra búvörusamninga. 

Í framsöguræðunni sagði Gunnar Bragi að samningarnir mörkuðu tímamót - þetta væri í fyrsta skipti sem samið er um alla búvörusamninga og búnaðarlagasamning í einu. Það þyrfti að breyta núverandi kerfi, auðvelda nýliðun í stétt bænda og gera stuðningsformin almennari og minna háð einstökum búgreinum til að opna möguleika á nýtingu nýrra tækifæra.

Helstu markmið samninganna væru að stuðla að aukinni framleiðslu búvara og bæta samkeppnishæfni landbúnaðarins og afkomu bænda. Þannig væri tryggt fjölbreytt framboð heilnæmra gæðaafurða á sanngjörnu verði til neytenda og fæðu- og matvælaöryggi þjóðarinnar aukið. 

Í samningnum eru aukin framlög til aðlögunar að lífrænni framleiðslu og tekinn verður upp stuðningur við mat á gróðurauðlindum, geitfjárrækt, fjárfestingastuðningi í svínarækt og stuðning við framleiðslu skógarafurða. Þá væri mikilsvert að efla landbúnað sem atvinnugrein í dreifðum byggðum og stuðla að sjálfbærri landnýtingu. Á samningstímabilinu er gert ráð fyrir endurskoðun samninganna tvisvar, þ.e. árin 2019 og 2023. 

Samningarnir voru undirritaðir fyrir höndríkisstjórnar Íslands 19. febrúar sl. af þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og fjármálaráðherra með fyrirvara um nauðsynlegar lagaheimildir Alþingis. 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á hjalp@utn.is

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta