Hoppa yfir valmynd
10. júní 2016 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið júlí - desember 2016

Miðvikudaginn 8. júní síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2016.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 3.250 stk. á meðalverðinu 113 kr./stk. Hæsta boð var 135 kr./stk. en lægsta boð var 95 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 1.650 stk. á meðalverðinu 121 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9093) samtals 3.960 stk. á meðalverðinu 116 kr./stk. Hæsta boð var 135 kr./stk. en lægsta boð var 95 kr./stk. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 2.160 stk. á meðalverðinu 125 kr./stk.

Tvö tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 6.900 stk., á meðalverðinu 12 kr./stk. Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 6.500 stk. á meðalverðinu 13 kr./stk.

Þrjár umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 115.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 118.750 stk. Úthlutað var án útboðs.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

Blómstrandi pottaplöntur júlí - desember 2016

Magn (stk) Tilboðsgjafi
565 Garðheimar Gróðurvörur ehf.
1.085 Húsasmiðjan Blómaval ehf.

Aðrar pottaplöntur júlí - desember 2016

Magn (stk) Tilboðsgjafi
400 Garðheimar Gróðurvörur ehf.
800 Grænn markaður ehf.
960 Húsasmiðjan Blómaval ehf.

Tryggðablóm júlí - desember 2016

Magn (stk) Tilboðsgjafi
400 Garðheimar Gróðurvörur ehf.
6.100 Samasem ehf.

(Annars) afskorin júlí - desember 2016

Magn (stk) Tilboðsgjafi
20.000 Garðheimar Gróðurvörur ehf.
45.000 Grænn markaður ehf.
50.000 Samasem ehf.

Reykjavík, 10. júní 2016

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum