Hoppa yfir valmynd
28. júní 2016 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á WTO tollkvóta 2016

Fimmtudaginn 9. júní 2016 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum og eggjum fyrir tímabilið 1. júlí til 31. desember 2016.

Samtals bárust umsóknir frá átján aðilum um tollkvótann. Til útboðs kom á tollkvótum á nauta-, svína- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, ostum og eggjum þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var.

Samtals bárust fimmtán gild tilboð í tollkvótann.

Fimm tilboð bárust um innflutning á nautagripakjöti, samtals 56.200 kg á meðalverðinu 118 kr./kg. Hæsta boð var 630 kr./kg en lægsta boð var 5 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 47.500 kg á meðalverðinu 138 kr./kg.

Fjögur tilboð bárust um innflutning á svínakjöti, samtals 31.300 kg á meðalverðinu 59 kr./kg. Hæsta boð var 270 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fjórum fyrirtækjum um innflutning á 31.300 kg á meðalverðinu 59 kr./kg. Til úthlutunar voru 32.000 kg.

Ein umsókn barst um innflutning á kinda- eða geitakjöti, samtals 30.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 172.500 kg.

Átta tilboð bárust um innflutning á kjöti af alifuglum, samtals 147.500 kg á meðalverðinu 309 kr./kg. Hæsta boð var 580 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 29.500 kg á meðalverðinu 546 kr./kg.

Þrjár umsóknir bárust um innflutning smjöri, samtals 17.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 26.500 kg.

Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum, samtals 154.000 kg á meðalverðinu 232 kr./kg. Hæsta boð var 390 kr./kg en lægsta boð var 11 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sex fyrirtækjum um innflutning á 59.500 kg á meðalverðinu 306 kr./kg.

Þrjú tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á eggjum, samtals 37.000 kg á meðalverðinu 20 kr./kg. Hæsta boð var 100 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 37.000 kg á meðalverðinu 20 kr./kg. Til úthlutunar voru 38.000 kg.

Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á unnum kjötvörum, samtals 150.400 kg. á meðalverðinu 404 kr./kg. Hæsta boð var 630 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 43.000 kg á meðalverðinu 568 kr./kg.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:

Nautgripakjöt fyrir tímabilið júlí – desember 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
5.000 Innnes ehf.
17.100 Íslenskar matvörur ehf.
200 Kaupás hf.
11.000 Nautica ehf.
14.200 Sælkeradreifing ehf.

Svínakjöt fyrir tímabilið júlí – desember 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
15.000 Íslenskar matvörur ehf.
4.800 Kaupás hf.
4.000 Nautica ehf.
7.500 Sláturfélag Suðurlands svf.

Kinda- og geitakjöt fyrir tímabilið júlí – desember 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
30.000 Íslenskar matvörur ehf.

Alifuglakjöt fyrir tímabilið júlí – desember 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
27.500 Kjarnafæði ehf.
2.000 Nautica ehf.

Smjör fyrir tímabilið júlí – desember 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
1.000 Aðföng hf.
8.000 Íslenskar matvörur ehf.
8.000 Nautica ehf.

Ostur fyrir tímabilið júlí – desember 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
40.000 Aðföng hf.
2.100 Garri ehf.
10.000 Íslenskar matvörur ehf.
2.000 KFC ehf.
2.900 Mjólkursamsalan ehf.
2.500 Mini market ehf.

Fuglsegg fyrir tímabilið júlí – desember 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
20.000 Innnes ehf.
10.000 Íslenskar matvörur ehf.
7.000 Sælkeradreifing ehf.

Unnar kjötvörur fyrir tímabilið júlí – desember 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
11.000 Innnes ehf.
5.000 Íslenskar matvörur ehf.
5.000 KFC ehf.
12.000 Nautica ehf.
10.000 Sælkeradreifing ehf.

Reykjavík, 28. júní 2016

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum