Hoppa yfir valmynd
21. júlí 2016 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á EFTA tollkvóta 2016-2017

Mánudaginn 13. júní 2016 rann út umsóknarfrestur um EFTA tollkvótum á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss, vegna innflutnings á nautakjöti úr vörulið ex0210.xxxx og ostum 0406.xxxx fyrir tímabilið 1. júlí 2016 – 30. júní 2017.
Ein umsókn barst um innflutning á nautakjöti úr vörulið ex0210.xxxx, samtals 5.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsókn náði ekki því magni sem í boði var eða 10.000 kg.
Ein umsókn barst um innflutning ostum, úr vörulið 0406.xxxx, samtals 9.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsókn náði ekki því magni sem í boði var eða 15.000 kg.
Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalins fyrirtækis á grundvelli umsóknar:

Nautakjöt fyrir tímabilið júlí 2016 – júní 2017

Magn (kg) Tilboðsgjafi
5.000 Íslenskar matvörur hf.

Ostur fyrir tímabilið júlí 2016 – júní 2017

Magn (kg) Tilboðsgjafi
9.000 Íslenskar matvörur ehf.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum