Hoppa yfir valmynd
16. september 2016 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Embætti safnstjóra Listasafns Íslands

Embætti safnstjóra Listasafns Íslands er laust til umsóknar. Safnstjóri stjórnar starfsemi og rekstri safnsins og mótar listræna stefnu þess. Hann ræður aðra starfsmenn safnsins og er í fyrirsvari fyrir það.

Ráðherra skipar safnstjóra Listasafns Íslands til fimm ára, sbr. 1. mgr. 4. gr. myndlistarlaga, nr. 64/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996 . Heimilt er að endurnýja skipunina einu sinni til næstu fimm ára.

  • Safnstjóri skal hafa háskólamenntun og staðgóða þekkingu á starfssviði safnsins.
  • Gert er ráð fyrir því að skipað verði í embættið frá og með 1. mars 2017.

Um laun og starfskjör safnstjóra Listasafns Íslands fer eftir ákvörðun kjararáðs, sbr. lög um kjararáð, nr. 47/2006 , með síðari breytingum, sbr. 39. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996 .

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík, eða á mailto:[email protected] . Nánari upplýsingar um starfið veitir Jens Pétur Hjaltested, [email protected]

  • Umsóknarfrestur er til og með 10. október 2016.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta