Auglýst er eftir umsóknum um styrki
Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki á sviði lista og menningar, menningararfs og til uppbyggingar landsmótsstaða
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 fimmtudaginn 10. nóvember 2016
Veittir eru styrkir til félaga, samtaka eða einstaklinga vegna verkefna á árinu 2017 sem ekki njóta lögbundis stuðnings eða falla undir sjóði eða sérstaka samninga, með fyrirvara um framlög á fjárlögum 2017.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti veitir styrki til eftirtalinna málaflokka:
Styrkir á sviði lista og menningar
Veitt eru framlög til félaga, samtaka og annarra aðila sem starfa á sviði lista og menningar og ekki hafa aðgang að uppbyggingarsjóðum landshluta eða öðrum sjóðum lista og menningar.
Styrkir á sviði menningararfs
Veitt eru framlög til félaga, samtaka og annarra aðila sem starfa að verndun menningarminja og ekki hafa aðgang að uppbyggingarsjóðum landshluta eða öðrum sjóðum á sviði menningararfs.
Styrkir til uppbyggingar landsmótsstaða
Veitt eru framlög til að styðja við uppbyggingu, endurnýjun og viðhalds íþróttamannvirkja og mannvirkja fyrir æskulýðsstarfsemi á landsmótssvæðum í samstarfi við sveitafélög og fleiri aðila.
Einungis eru veittir styrkir til ofangreindra málaflokka. Ekki eru veittir styrkir til menntamála, vísinda eða annarra þeirra verkefna sem falla undir aðra málaflokka á verkefnasviði ráðuneytisins. Því falla fræðslu- og menntastyrkir ekki hér undir.
Mat á umsóknum.
Starfshópur metur styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir verkefnasvið ráðuneytis almennt. Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum eftir því sem við á:
a) gildi og mikilvægi verkefnis fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks,
b) gildi og mikilvægi fyrir kynningu og markaðssetningu viðkomandi málaflokks,
c) að umsækjanda takist að ná þeim markmiðum sem verkefnið miðar að,
d) starfsferli og faglegum bakgrunni umsækjanda og annarra þátttakenda,
e) fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.
Hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina eða eins og kveðið er á um í samkomulagi vegna fyrri styrkveitinga.
Við mat á umsóknum er starfshópnum heimilt að leita umsagnar fagaðila, gerist þess þörf.
Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir eigi síðar en 31. janúar 2017.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins (http://minarsidur.stjr.is)
- Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjanda og verður lykilorð sent viðkomandi á netfang sem hann gefur upp við nýskráningu.
- Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar. Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja mennta- og menningarmálaráðuneyti á síðunni Eyðublöð
- Heiti eyðublaðs: Menningarstyrkir MRN 2016
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 fimmtudaginn 10. nóvember 2016
Nánari upplýsingar veitir Ásta Ingólfsdóttir í síma 545 9520 eða í tölvupósti á [email protected]