Hoppa yfir valmynd
12. október 2016 Atvinnuvegaráðuneytið

Ríkisstjórnin ákveður að leggja til hliðar frumvarp um raflínur að Bakka

Í tengslum við uppbyggingu iðnaðarsvæðis að Bakka hafa þrjú sveitarfélög á svæðinu gefið út fjögur framkvæmdaleyfi vegna lagningar raflína frá Kröfluvirkjun að Bakka (Þeistareykjalína 1 og Kröflulína 4). Fyrr á árinu voru þau framkvæmdaleyfi kærð til úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála og í júní og ágúst kvað úrskurðanefndin upp úrskurði til bráðabirgða þar sem stöðvaðar voru framkvæmdir á hluta leiðarinnar í Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit. Úrskurðir þessir settu framgang verkefnisins í uppnám og í ljósi þeirra ríku samfélagslegu og efnahagslegu hagsmuna sem í húfi eru var lagt fram á Alþingi stjórnarfrumvarp sem heimilaði lagningu viðkomandi raflína með það að markmiði að eyða þeirri óvissu sem upp var komin.

Þann 10. október 2016 féll efnisúrskurður hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála þar sem framkvæmdaleyfi Skútustaðahrepps vegna Kröflulínu 4 er fellt úr gildi á grundvelli ákveðinna formgalla við útgáfu leyfisins. Með úrskurðinum var jafnframt staðfest að umhverfismat vegna háspennulínu frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka sé í gildi og því sé ekki þörf á nýju umhverfismati. Því hefur verið eytt veigamikilli óvissu varðandi umræddar framkvæmdir, sem var ein meginástæða fyrir framlagningu áðurnefnds stjórnarfrumvarps.

Að höfðu samráði við sveitarfélögin sem hlut eiga að máli var á fundi ríkisstjórnar í morgun ákveðið að falla frá framangreindu stjórnarfrumvarpi. Í framhaldi af því munu viðkomandi sveitarfélög, á grundvelli þeirra sjónarmiða sem fram koma í úrskurðinum frá 10. október 2016, fara yfir þau framkvæmdaleyfi sem gefin hafa verið út vegna framkvæmdarinnar og meta hvort tilefni sé til frekari viðbragða með það að markmiði að eyða enn frekar óvissu um framgang framkvæmdarinnar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta