Hoppa yfir valmynd
28. október 2016 Matvælaráðuneytið

Strandríkjafundum um kolmunna og norsk-íslenska síld lokið án niðurstöðu um skiptingu

Kolmunni

Í gær lauk strandríkjafundum um kolmunna og norsk-íslenska síld sem staðið hafa í London síðan á mánudag. Ekki var samið um skiptingu stofnanna milli strandríkjanna en samkomulag varð um að fylgja skyldi ráðgjöf Alþjóða hafrannsóknaráðsins (ICES) um hámarksveiði á árinu 2017.

Samkvæmt ráðgjöfinni á heildarveiði á norsk-íslenskri síld ekki að fara yfir 646.075 tonn og ekki umfram 1.342.330 tonn af kolmunna. Í báðum tilvikum er um mikla aukningu að ræða á milli ára. Þá náðist á ný samkomulag um nýtingaráætlun fyrir kolmunna. Í norsk-íslenskri síld er áfram fylgt nýtingaráætlun sem sett var árið 1999.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum