Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2016 Matvælaráðuneytið

Tillögur frá Vestfjarðanefnd til framkvæmda

Vestfirðir
Vestfirðir

Í framhaldi af skýrslu nefndar um samfélags- og atvinnuþróun á Vestfjörðum sem kynnt var í ríkisstjórn 5. september sl. ákvað ríkisstjórnin á fundi sínum í gær að samþykkja tillögur Gunnars Braga Sveinssonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um þau atriði skýrslunnar sem heyra undir verkefnasvið hans.   

Annars vegar er um að ræða stuðning við uppbyggingu og rekstur á þjónustukjarna á Þingeyri í samstarfi við Ísafjarðabæ og þjónustuaðila. Mikilvægt er að íbúar í minni byggðalögum geti gengið að ákveðinni grunnþjónustu í heimabyggð og veitti ríkisstjórnin 4 m.kr af ráðstöfunarfé sínu í stofnkostnað við verkefnið. Er horft til þess að ef verkefnið gangi vel megi útfæra það á fleiri staði á landinu. Frá og með næsta ári mun ríkið leggja árlega 3,2 m.kr til verkefnisins.

Hins vegar mun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið endurskoða svæðisbundna flutningsjöfnun og útfæra reglur um flutningsjöfnunarstyrki þ.a. þeir nýtist sem flestum vítt og breitt um landið.

Áður hafði ráðherra ákveðið að miðstöð fiskeldismála yrði á Vestfjörðum í samræmi við skýrslu Vestfjarðanefndarinnar. Með afgreiðslu ríkisstjórnarinnar í gær eru því allar tillögur Vestfjarðanefndarinnar sem snúa að sjávarútvegs-, landbúnaðar- og byggðamálahluta  ráðuneytisins komnar til framkvæmda.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum