Hoppa yfir valmynd
17. nóvember 2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-september 2016

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar - september 2016 liggur nú fyrir og gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Handbært fé frá rekstri batnaði verulega á milli ára og var jákvætt um 59,1 ma.kr. samanborið við neikvætt handbært fé upp á 30,0 ma.kr. 2015. Þetta skýrist að stærstum hluta með tekjum af stöðuleikaframlögum á árinu 2016 sem námu 68 ma.kr á tímabilinu. Handbært fé lækkar um 38,7 ma.kr. samanborið við lækkun um 111,9 ma.kr. á árinu 2015, afborganir lána á tímabilinu námu 126,8 ma.kr.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum