Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2016 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til grunnnáms í listdansi

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki til dansskóla sem kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki til dansskóla sem kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla. Styrkjunum er ætlað að efla framboð grunnnáms í listdansi. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að skólinn hafi hlotið viðurkenningu ráðuneytisins á starfseminni samkvæmt viðmiðum sem ráðuneytið hefur sett.

  • Umsókn um rekstrarstyrk þurfa að fylgja upplýsingar um nemendafjölda og skólagjöld.
  • Nánari leiðbeiningar um frágang umsókna eru á umsóknareyðublaði á vef ráðuneytisins,
  • Umsóknarfrestur er til 15. desember 2016

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum