Hoppa yfir valmynd
29. nóvember 2016 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Starf ritara á skrifstofu yfirstjórnar og skrifstofu laga og stjórnsýslu

Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf ritara á skrifstofu yfirstjórnar og skrifstofu laga og stjórnsýslu. Um er að ræða hálft starf.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf ritara á skrifstofu yfirstjórnar og skrifstofu laga og stjórnsýslu. Starfið er afar fjölþætt og felst í almennum ritara- og skrifstofustörfum auk sérhæfðra verkefna eins og undirbúningi lagafrumvarpa og stjórnvaldsfyrirmæla. Um er að ræða hálft starf.

Leitað er að einstaklingi sem hefur til að bera frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. Góð kunnátta og ritfærni í íslensku er skilyrði. Góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli eru nauðsynlegir kostir ásamt hæfni í mannlegum samskiptum.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun taka mið af  kjarasamningi Félags starfsmanna Stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Jens Pétur Hjaltested, rekstrarstjóri í síma 545 9500

  • Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík eða á netfangið: [email protected].
  • Umsóknarfrestur er til og með 19. desember 2016. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
  •  Við ráðningar í störf hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti er tekið mið af jafnréttisáætlun ráðuneytisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum