Starfshópur um stefnumótun í fiskeldi
Fiskeldi er ört vaxandi atvinnugrein og mikilvægt er að skilyrði og umgjörð um greinina séu eins og best verður á kosið og í sem mestri sátt við umhverfið. Í því augnamiði hefur verið skipaður starfshópur sem skal vinna við heildar stefnumótun fyrir fiskeldi á Íslandi og skal hann ljúka vinnu sinni eigi síðar en 30. júní 2017.
Stefnumótun er nú sérstaklega brýn vegna hins hraða vaxtar greinarinnar. Í henni þarf m.a. að horfa til stjórnsýslu og rannsókna, almennra starfsskilyrða greinarinnar, umhverfismála, hættu á erfðablöndun við villta stofna, sjúkdóma og sníkjudýra, menntunarmála, gjaldtöku, markaðsmála og efnahagslegrar þýðingar fyrir þjóðarbúið. Verður þetta skoðað bæði út frá eldi í sjó og á landi.
Starfshópur um stefnumótun í fiskeldi
- Baldur P. Erlingsson formaður, skipaður af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti
- Sigurbjörg Sæmundsdóttir, tilnefnd af umhverfis- og auðlindaráðuneyti
- Guðmundur Gíslason, tilnefndur af Landssambandi fiskeldisstöðva
- Kjartan Ólafsson, tilnefndur af Landssambandi fiskeldisstöðva
- Óðinn Sigþórsson, tilnefndur af Landssambandi veiðifélaga
- Bryndís Björnsdóttir, tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti