Fjármála- og efnahagsráðuneytið á Facebook
Fjármála- og efnahagsráðuneytið opnar í dag Facebook-síðu, samhliða því að fjárlagafrumvarp fyrir árið 2017 er lagt fram.
Með opnun síðunnar er upplýsingamiðlun ráðuneytisins efld. Á Facebook verður efni miðlað af vef ráðuneytisins og athygli vakin á ýmsum verkefnum og viðburðum. Einnig verður miðlað öðru efni sem varpar ljósi á störf ráðuneytisins en fær ekki sérstaka umfjöllun á vef þess.
Ráðuneytið hefur síðastliðin ár verið með síðu á Twitter.
Með Facebook-síðunni bætist fjármála- og efnahagsráðuneytið í hóp nokkurra annarra ráðuneyta sem eru með síður á miðlinum.