Hoppa yfir valmynd
7. desember 2016 Matvælaráðuneytið

Svæðisbundinn stuðningur við sauðfjárrækt endurskilgreindur

Í samræmi við ný búvörulög var Byggðastofnun falið síðastliðið vor að útfæra með einfaldari og skýrari hætti en áður svæðisbundinn stuðning fyrir sauðfjárbændur á þeim landsvæðum sem háðust eru sauðfjárrækt. Hingað til hefur verið miðað við mörk sveitarfélaga, en eftir breytinguna verður miðað við fjarlægð frá næsta þéttbýlisstað. 

Að mati Byggðastofnunar getur afmörkun við sveitarfélög valdið því að svæði sem nú njóta stuðnings falli út, t.d. vegna sameiningar sveitarfélaga. Til þess að komast hjá slíku var horft til þess að vera með almennar skilgreiningar sem byggjast á fjarlægð frá stærra þéttbýli. Byggir það á því að þeir sem búa í nágrenni þéttbýlis eiga möguleika á að sækja vinnu þangað umfram þá sem fjær búa.

Unnið hefur verið úr tillögum Byggðastofnunar og liggja tillögurnar fyrir. Núverandi stuðningur á býli er núna milli 173.553 kr. og 267.830 kr. á ári en verður á fysta ári samningsins milli 234.875 og 293.594 eftir breytinguna,. Framlög til svæðisbundins stuðnings hækka svo árið 2018 og verða greiðslur á býli milli 344.009 kr. og 430.012 kr.

Markmiðið með svæðisbundnum stuðningi er að veita stuðning til framleiðenda sem hafa takmarkaða möguleika á annarri tekjuöflun og eru á landsvæðum sem háðust eru sauðfjárrækt.

Áfram munu gilda sérstakar reglur um  framleiðendur í Árneshreppi en þeir munu fá 25% álag á svæðisbundinn stuðning fyrir 100 ær eða fleiri samkvæmt forðagæsluskýrslu frá síðasta hausti. Í tillögunum er gert ráð fyrir að framleiðendur sem uppfylla öll neðangreind skilyrði eigi rétt á svæðisbundnum stuðningi:

  1. Búi á lögbýli sem er í 40 km akstursfjarlægð eða lengra frá þéttbýlisstað sem er með yfir 1.000 íbúa.
  2. Búi á lögbýli sem er í 75 km akstursfjarlægð eða lengra frá þéttbýlisstað sem er með yfir 10.000 íbúa.
  3. Búi lögbýli sem er í 150 km akstursfjarlægð eða lengra frá Reykjavík.

Þá er mælt fyrir um það í tillögunum að til að eiga rétt á svæðisbundnum stuðningi þurfi viðkomandi bændur að stunda sauðfjárrækt á lögbýli og hafa átt 250 ær eða fleiri samkvæmt forðagæsluskýrslu frá næstliðnu hausti.

Á meðfylgjandi korti sem Byggðastofnun vann samhliða tillögunum, má sjá hvaða svæði koma til með að njóta stuðnings miðað við framangreindar tillögur. Í drögum að reglugerð um stuðning við sauðfjárrækt sem ráðuneytið birti til umsagnar 24. nóvember sl. má sjá einstök ákvæði um svæðisbundinn stuðning. Reglugerðin tekur gildi 1. janúar 2017.

 

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum