Hoppa yfir valmynd
8. desember 2016 Matvælaráðuneytið

Úttekt á starfsemi Matvælastofnunar

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur falið þeim Bjarna Snæbirni Jónssyni stjórnunarráðgjafa og doktor Ólafi Oddgeirssyni dýralækni, framkvæmdastjóra ráðgjafafyrirtækisins Food Control Consultants Ltd í Skotlandi að fara yfir og gera úttekt á ýmsum þáttum er lúta að rekstri og starfsumhverfi Matvælastofnunar.

Þeir munu fara yfir verkferla Matvælastofnunar hvað varðar eftirlit með lögum um dýravelferð og matvælaeftirlit og greina starfsaðferðir og bera saman við það sem almennt gerist hjá sambærilegum stofnunum í Evrópu. Þá munu sérfræðingar ráðuneytisins fara yfir þau lög sem gilda um starfsemi stofnunarinnar, beitingu þeirra og greina hvort skortur á lagaúrræðum hamli því að stofnunin geti veitt almenningi og opinberum stofnunum upplýsingar úr eftirlitsskýrslum. Kristín Benediktsdóttir dósent við Háskóla Íslands mun verða ráðuneytinu til aðstoðar hvað varðar lagafyrirmæli er lúta að birtingum upplýsinga.

Þá verði gerð athugun á rekstri, skipulagi og stjórnun og hvernig ráðuneytið sinnir almennum eftirlitsskyldum sínum með starfsemi Matvælastofnunar. Loks er óskað eftir ábendingum um það sem betur má fara varðandi framangreinda þætti, tillögum um breytingar á lögum og öðru því sem telja má að geti eflt framkvæmd með lögum um dýravelferð og matvælaeftirlit.

Gert er ráð fyrir að niðurstöður framangreindra athugana liggi fyrir í lok febrúar. Í ráðuneytinu er unnið að endurskoðun laga um Matvælastofnun og verður afraksturinn m.a. nýttur við þá lagasmíð.

Gunnar Bragi Sveinsson ráðherra. „Það má öllum vera ljóst að það er mikilvægt að traust ríki um starfhætti Matvælastofnunar. Við höfum fengið mjög hæfa einstaklinga til að yfirfara verkferla, lagalegt umhverfi og stjórnsýslu á sviði dýravelferðar og matvælaeftirlits. Með þessu vil ég stuðla að því að við lærum af þeim mistökum sem kunna að hafa verið gerð í einstökum málum og tryggjum að lagaleg umgjörð sé í samræmi við almenna hagsmuni.“

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum