Hoppa yfir valmynd
9. desember 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Styrkir til félagasamtaka vegna verkefna á sviði félagsmála

Auglýsing frá velferðarráðuneytinu
Styrkir til félagasamtaka vegna verkefna á sviði félagsmála

Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum um verkefni sem falla undir verkefnasvið ráðuneytisins á sviði félagsmála. Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem hljóta styrki á fjárlögum eða falla undir sjóði ráðuneytisins eða samninga sem gerðir hafa verið við ráðuneytið.

Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 9. janúar 2017.
Úthlutað verður eigi síðar en 28. febrúar 2017.

Veittir eru styrkir til afmarkaðra verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf samkvæmt áherslum ráðherra hverju sinni. Styrkir eru ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Þá má m.a. veita til verkefna sem felast í því að:

  1. Útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi.
  2. Vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna.
  3. Bjóða upp á stuðning og ráðgjöf.

Veittir eru styrkir til félagasamtaka sem starfa á sviði endurhæfingar, málefna fatlaðs fólks, forvarna, fræðslu og fjölskyldu- og jafnréttismála. Að þessu sinni verður lögð sérstök áhersla á verkefni sem eiga að:

  1. Efla svæðisbundið samráð á sviði aðgerða gegn ofbeldi og afleiðingum þess* sbr. samstarfsyfirlýsingu um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess.
  2. Draga úr fátækt og félagslegum afleiðingum fátæktar.

Ekki eru veittir styrkir eingöngu til rekstrar. Með rekstri er m.a. átt við rekstur skrifstofu, þ.m.t. greiðslu húsaleigu.

Mat á umsóknum

Starfshópur metur styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir málefnasvið ráðuneytisins. Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum eftir því sem við á:

  1. Gildi og mikilvægi verkefnis fyrir viðkomandi málaflokk.
  2. Að umsækjanda muni takast að ná þeim markmiðum sem að er stefnt.
  3. Að verkefnið sé byggt á faglegum grunni.
  4. Að gerð sé grein fyrir því í umsókn hvernig staðið skuli að mati á árangri.
  5. Fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.

Hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd þess verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina.

Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins (http://minarsidur.stjr.is)

Innskráning á mínar síður – þrjár leiðir:

  1. Auðkenning með rafrænum skilríkjum á vef Island.is.
  2. Auðkenning með Íslykli á vef Island.is.
  3. Notandi velur flipann Nýskráning og skráir sig á vefinn á kennitölu sinni, gefur upp fullt nafn, heimilisfang og netfang og ákveður síðan lykilorð.

Hafi notandi sótt um áður á Mínum síðum velur hann flipann Innskráning og skráir sig inn með einhverri ofangreindra aðferða.

Undir flipanum Eyðublöð eru eyðublöð flokkuð eftir ráðuneytum og stofnunum. Athugið að merkja við velferðarráðuneytið. Þar undir er umsóknareyðublaðið Styrkur af safnliðum fjárlaga 2017 – félagsmál.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um umsóknir á rafrænum eyðublöðum er að finna á vef ráðuneytisins.

Vakin er athygli á því að hægt er að gerast áskrifandi að fréttum velferðarráðuneytisins og fá reglulega fréttir og tilkynningar þaðan. 


* Stýrihópur þriggja ráðuneyta sem starfar samkvæmt samstarfsyfirlýsingu þriggja ráðherra um aðgerðir gegn ofbeldi vinnur meðal annars að því að leggja grunn að svæðisbundnu samráði með það að markmiði að bæta verklag við fyrirbyggjandi aðgerðir og rannsóknir á ofbeldismálum. Hefur stýrihópurinn skipt landinu í níu svæði og haft sjónarhornið á félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu, lögreglu, sýslumanni og félagasamtökum. Hópurinn hefur þegar haldið fundi á fjórum landssvæðum. Forsenda árangursríks samstarfs á þessu sviði er að framangreindir opinberir aðilar í samstarfi við félagasamtök taki höndum saman gegn ofbeldi með fyrirbyggjandi aðgerðum, bættum vinnubrögðum við rannsókn mála og ráðgjöf og valdeflingu þolenda ofbeldis.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum