Hoppa yfir valmynd
13. desember 2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs fyrir janúar-október 2016

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir janúar - október 2016 liggur nú fyrir og gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtra tekna og greiddra gjalda. Handbært fé frá rekstri batnaði verulega á milli ára og var jákvætt um 72 ma.kr. samanborið við neikvætt handbært fé upp á 20 ma.kr. 2015. Þetta skýrist að stærstum hluta með tekjum af stöðuleikaframlögum á árinu 2016 sem námu 52 ma.kr á tímabilinu. Handbært fé lækkar um 82,8 ma.kr. samanborið við lækkun um 113,6 ma.kr. á árinu 2015. Afborganir lána á tímabilinu námu 196,4 ma.kr. 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum