Hoppa yfir valmynd
20. desember 2016 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á WTO tollkvóta á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið janúar til júní 2017

Þriðjudaginn 13. desember 2016 rann út umsóknarfrestur um tollkvóta vegna innflutnings á nauta-, svína-, kinda-, geita- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, smjöri og ostum og eggjum fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2017.

Samtals bárust þrettán umsóknir frá aðilum um tollkvótann. Til útboðs kom á tollkvótum á nauta-, svína- og alifuglakjöti, unnum kjötvörum, ostum og eggjum þar sem umsótt magn var meira en það magn sem í boði var.

Samtals bárust ellefu gild tilboð í tollkvótann.

Sex tilboð bárust um innflutning á nautgripakjöti, samtals 127.500 kg á meðalverðinu 136 kr./kg. Hæsta boð var 300 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 47.500 kg á meðalverðinu 238 kr./kg.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á svínakjöti, samtals 45.000 kg á meðalverðinu 34 kr./kg. Hæsta boð var 70 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 32.000 kg á meðalverðinu 47 kr./kg.

Tvær umsóknir bárust um innflutning á kinda- eða geitakjöti, samtals 45.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 172.500 kg.

Sjö tilboð bárust um innflutning á kjöti af alifuglum, samtals 149.500 kg á meðalverðinu 273 kr./kg. Hæsta boð var 600 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 29.500 kg á meðalverðinu 397 kr./kg.

Þrjár umsóknir bárust um innflutning smjöri, samtals 18.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 26.500 kg.

Sjö tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum, samtals 181.200 kg á meðalverðinu 172 kr./kg. Hæsta boð var 450 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá sjö fyrirtækjum um innflutning á 59.500 kg á meðalverðinu 356 kr./kg.

Fjögur tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á eggjum og afurðum þeirra, samtals 56.000 kg á meðalverðinu 31 kr./kg. Hæsta boð var 100 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 38.000 kg á meðalverðinu 40 kr./kg.

Átta tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á unnum kjötvörum, samtals 161.000 kg. á meðalverðinu 148 kr./kg. Hæsta boð var 690 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fjórum fyrirtækjum um innflutning á 43.000 kg á meðalverðinu 609 kr./kg.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:


Nautgripakjöt fyrir tímabilið janúar - júní 2017

Magn (kg) Tilboðsgjafi
42.500 Kjötmarkaðurinn ehf
5.000 Ölgerðin ehf

Svínakjöt fyrir tímabilið janúar – júní 2017

Magn (kg) Tilboðsgjafi
4.364 Íslenskar matvörur ehf.
20.000 Kjötmarkaðurinn ehf
7.636 Krónan hf

Kinda- og geitakjöt fyrir tímabilið júlí – desember 2016

Magn (kg) Tilboðsgjafi
40.000 Íslenskar matvörur ehf
5.000 Sælkeradreifing ehf


Alifuglakjöt fyrir tímabilið janúar – júní 2017

Magn (kg) Tilboðsgjafi
22.500 Innnes ehf
7.000 Garri ehf

Smjör fyrir tímabilið janúar – júní 2017

Magn (kg) Tilboðsgjafi
5.000 Íslenskar matvörur ehf
5.000 Krónan hf.
8.000 Nautica ehf

Ostur fyrir tímabilið janúar – júní 2017

Magn (kg) Tilboðsgjafi
18.000 Aðföng hf
2.800 Garri ehf
700 Innnes ehf
10.000 Íslenskar matvörur ehf
4.000 Krónan hf
15.000 Mjólkursamsalan ehf
9.000 Parlogis ehf

Fuglsegg fyrir tímabilið janúar – júní 2017

Magn (kg) Tilboðsgjafi
31.000 Nautica ehf.
7.000 Sælkeradreifing ehf

Unnar kjötvörur fyrir tímabilið janúar – júní 2017

Magn (kg) Tilboðsgjafi
3.000 Innnes ehf
3.000 Nautica ehf
10.000 Parlogis ehf
27.000 Sælkeradreifing ehf


Reykjavík, 20. desember 2016

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum