Hoppa yfir valmynd
20. desember 2016 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2017

Miðvikudaginn 14. desember síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2017.

Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 2.700 stk., á meðalverðinu 120 kr./stk. Hæsta boð var 129 kr./stk. en lægsta boð var 111 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.200 stk. á meðalverðinu 122 kr./stk.

Tvö tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9093) samtals 3.900 stk., á meðalverðinu 116 kr./stk. Hæsta boð var 135 kr./stk. en lægsta boð var 95 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 3.000 stk. á meðalverðinu 123 kr./stk.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á rósum (0603.1100) samtals 4.200 stk., á meðalverðinu 49 kr./stk. Hæsta boð var 53 kr./stk. en lægsta boð var 40 kr./stk. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 2.000 stk. á meðalverðinu 53 kr./stk.

Tvö tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 9.300 stk., á meðalverðinu 8 kr./stk. Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 8 kr./stk.

Þrjár umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 150.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 166.250 stk. Úthlutað var án útboðs.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:


Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2017

Magn (stk) Tilboðsgjafi
500 Garðheimar-Gróðurvörur ehf
1.700 Húsasmiðjan Blómaval ehf

Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2017

Magn (stk) Tilboðsgjafi
900 Garðheimar–Gróðurvörur ehf
2.100 Húsasmiðjan Blómaval ehf

Rósir janúar – júní 2016

Magn (stk) Tilboðsgjafi
2.000 Grænn markaður ehf

Tryggðablóm janúar – júní 2016

Magn (stk) Tilboðsgjafi
300 Garðheimar-Gróðurvörur ehf
8.700 Samasem ehf

(Annars) afskorin blóm janúar – júní 2016

Magn (stk) Tilboðsgjafi
20.000 Garðheimar gróðurvörur ehf
60.000 Grænn markaður ehf
70.000 Samasem ehf


Reykjavík, 20. desember 2016

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum