Hoppa yfir valmynd
30. desember 2016 Heilbrigðisráðuneytið

Tannlækningar fjögurra og fimm ára barna verða gjaldfrjálsar

Bætt tannheilsa
Hjá tannlækni

Þann 1. janúar 2017 bætast fjögurra og fimm ára börn í hóp þeirra barna sem njóta gjaldfrjálsra tannlækninga samkvæmt samningi Sjúkratrygginga Íslands og tannlækna frá árinu 2013. Samningurinn nær þar með til allra barna á aldrinum 3–17 ára. Eftir eitt ár bætast börn yngri en þriggja ára í hópinn.

Skilyrði fyrir því að barn eigi rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum er að það hafi verið skráð hjá heimilistannlækni sem er með samning við Sjúkratryggingar Íslands.

Samkvæmt tilkynningu á vef Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) hafa nú 61.674 börn, 17 ára og yngri, verið skráð með heimilistannlækni. Af þeim munu 61.028 börn falla undir samninginn frá 1. janúar 2017. Samkvæmt Hagstofu Íslands voru 79.555 börn, yngri en 18 ára, búsett á Íslandi 1. desember 2016.  Þar af eru 12.813 börn yngri en þriggja ára sem munu ekki falla undir samninginn fyrr en eftir eitt ár. Rúmlega 91% þeirra barna, sem eiga rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum frá 1. janúar 2017, hafa því þegar verið skráð hjá heimilistannlækni.

Ef tannlækningar eru nauðsynlegar vegna alvarlegra afleiðinga fæðingargalla, sjúkdóma eða slysa, sem upp koma fyrir 18 ára aldur, og ekki er faglega rétt að meðhöndla fyrr en fullum þroska höfuðkúpu- eða kjálkabeina er náð, greiða Sjúkratryggingar Íslands nauðsynlega tannlæknismeðferð samkvæmt gjaldskrá samningsins ef umsókn þar að lútandi hefur verið samþykkt af stofnuninni. Heimild þessi nær þó aðeins t.o.m. 22 ára aldurs.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum