Hoppa yfir valmynd
6. mars 2017 Matvælaráðuneytið

Frumvarp til umsagnar: Endurskoðun á samkeppnisstöðu mjólkuriðnaðarins

Kýr
Kýr

Á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafa verið unnin drög að frumvarpi til laga um breytingu á búvörulögum og búnaðarlögum sem m.a. mæla fyrir um frávik frá samkeppnislögum fyrir mjólkuriðnaðinn. Frumvarpsdrögin eru til umsagnar til og með 17. mars. 

Þá er jafnframt unnið að því í ráðuneytinu að forma tillögur hvernig best verði staðið að ráðstöfun innflutningskvóta með hliðsjón af hagsmunum neytenda. Tillögur að breytingum þess efnis verða kynntar sérstaklega þegar þær liggja fyrir.

Verði frumvarpið að lögum mun:

  • Allir aðilar í mjólkuriðnaði geta keypt mjólk með sama tilkostnaði og markaðsráðandi afurðastöð.
  • Markaðsráðandi afurðastöð mjólkur verður skylt að safna og taka við allri hrámjólk sem henni býðst frá framleiðendum mjólkur.
  • Markaðsráðandi afurðastöð verður skylt að selja óháðum afurðastöðvum og vinnsluaðilum hrámjólk sem nemur allt að 20% af þeirri hrámjólk sem hún tekur við.
  • Verð á hrámjólk verður áfram ákveðið af verðlagsnefnd og gildir gagnvart framleiðsluhluta markaðsráðandi afurðastöðvar og óháðum aðilum. Sama jafnræði skal gilda um önnur viðskiptakjör og skilmála.
  • Framleiðsluhluti markaðsráðandi afurðastöðvar skal vera fjárhagslega og stjórnunarlega aðskilin frá annarri starfsemi afurðarstöðvarinnar.
  • Eftirlit með markaðsráðandi afurðastöð skv. búvörulögum verður í höndum Samkeppniseftirlitsins.

Helsta breyting frá núgildandi ákvæðum búvörulaga:

  • Afurðastöðvum í mjólkuriðnaði verður óheimilt að gera samninga sín á milli um verðtilfærslu milli tiltekinna afurða.
  • Afurðastöðvum í mjólkuriðnaði verður óheimilt að sameinast, gera með sér samkomulag um verkaskiptingu milli mjólkursamlaga að því er varðar framleiðslu einstakra mjólkurvara og hafa með sér annars konar samstarf við framleiðslu, geymslu og dreifingu mjólkurafurða.

Við vinnslu frumvarpsins var tekið mið af tillögum Samkeppniseftirlitsins sem eftirlitið skilaði atvinnuveganefnd vegna umfjöllunar um frumvarp til breytinga á búvörulögum og fl. á 145. löggjafarþingi. Einnig var tekið mið að því hvernig skipulagi fyrir mjólkuriðnaðinn er háttað í Noregi og Hollandi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum