Hoppa yfir valmynd
15. desember 2017 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2018

Eitt tilboð barst um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9091) samtals 2.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 2.200 stk. Úthlutað var án útboðs.

 

Eitt tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum á vörulið (0602.9093) samtals 2.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 3.000 stk. Úthlutað var án útboðs.

 

Þrjú tilboð bárust um innflutning á rósum (0603.1100) samtals 3.350 stk., á meðalverðinu 33 kr./stk.  Hæsta boð var 55 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.000 stk. á meðalverðinu 46 kr./stk.

 

Þrjú tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 9.900 stk., á meðalverðinu 5 kr./stk.  Hæsta boð var 55 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá þremur fyrirtækjum um innflutning á 9.000 stk. á meðalverðinu 5 kr./stk.

 

Þrjár umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, (0603.1909) samtals 88.325 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 166.250 stk. Úthlutað var án útboðs.

 

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og  nýsköpunararráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

 

Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2018

 

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

2.000

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

 

Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2018

 

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

2.000

Garðheimar–Gróðurvörur ehf

 

Rósir janúar – júní 2018

 

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

1.000

Garðheimar–Gróðurvörur ehf

1.000

Samasem ehf

 

Tryggðablóm janúar – júní 2018

 

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

400

Blómabúð Akureyrar ehf

500

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

8.100

Samasem ehf

 

(Annars)  afskorin blóm janúar – júní 2018

 

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

3.325

Blómabúð Akureyrar ehf

20.000

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

65.000

Samasem ehf

 

Reykjavík, 15. desember 2017  

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum