Hoppa yfir valmynd
21. mars 2018 Matvælaráðuneytið

Ráðherra undirritar reglugerð um sjóstangaveiðimót

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur undirritað nýja reglugerð um skráningu afla á opinberum sjóstangaveiðimótum en slík mót eru haldin víða um land á hverju sumri á vegum sjóstangveiðifélaga. Með reglugerðinni er leitast við að einfalda framkvæmd aflaskráningar en sjóstangaveiðifélögunum eru með lögum um stjórn fiskveiða tryggðar fullnægjandi aflaheimildir vegna mótanna og skal tekjum af sölu aflans ráðstafað til að standa á móti kostnaði við mótshaldið. Reglugerðin var sett að höfðu samráði við Landssamband sjóstangaveiðifélaga og Fiskistofu. Reglugerðin er birt í Stjórnartíðindum. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum