Hoppa yfir valmynd
25. maí 2018 Dómsmálaráðuneytið

Þjónusta á kjördag

Þjónusta á kjördag - myndHaraldur Jónasson / Hari

Hér á eftir er tilgreint hvar kjósendur geta leitað almennra upplýsinga á kjördag, svo sem um kjörskrá, kjörstaði og atriði er lúta að framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna laugardaginn 26. maí 2018.

Dómsmálaráðuneytið

Í dómsmálaráðuneytinu verða veittar upplýsingar frá klukkan 10 að morgni til klukkan 22 að kvöldi. Símanúmer eru 545-9050 og 545-9070.

Þjóðskrá Íslands verður með símavakt á kjördag, laugardaginn 26. maí, frá klukkan 10 að morgni til klukkan 22 að kvöldi. Þar verða meðal annars veittar upplýsingar um kjörskrá.
Símanúmerið er 515-5300. Einnig má hafa samband með tölvupósti á [email protected]

Kjörstaðir 

Sveitarfélög auglýsa kjörstaði við sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí og mörg þeirra birta einnig kjörfundarupplýsingar á vefjum sínum.  Dómsmálaráðuneytið hefur safnað upplýsingum um kjörstaði og tengt í slíkar upplýsingar á vefjum sveitarfélaganna. Enn eru allnokkur sveitarfélög ótengd, meðal annars vegna þess að upplýsingar hafa ekki birst á vefjum þeirra.

Upplýsingar um kjörstaði á kjördag. 

Kjörskrá

Velflest sveitarfélög eru með skráða kjörstaði og kjördeildir í kjörskrá Þjóðskrár Íslands. 
Kjósendur geta með einföldum hætti kannað hvar þeir eru skráðir á kjörskrá.

Uppfletting í kjörskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum