Hoppa yfir valmynd
11. júní 2018 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á EFTA tollkvóta 2018-2019

Þriðjudaginn 5. júní 2018 rann út umsóknarfrestur um EFTA tollkvótum á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss, vegna innflutnings á nautakjöti úr vörulið ex0210.xxxx og ostum 0406.xxxx fyrir tímabilið 1. júlí 2018 – 30. júní 2019.

Tvö tilboð bárust um innflutning á nautakjöti úr vörulið ex0210.xxxx, samtals 15.000 kg. á meðalverðinu 1 kr./kg. Hæsta boð var 1 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá einu fyrirtæki um innflutning á 10.000 kg á meðalverðinu 1 kr./kg.

Ein umsókn barst um innflutning ostum, úr vörulið 0406.xxxx, samtals 7.000 kg. Ekki kom til útboðs þar sem umsóknir náðu ekki því magni sem í boði var eða 15.000 kg.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli umsókna:

Nautakjöt fyrir tímabilið júlí 2018 – júní 2019

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

10.000

Innnes ehf

Ostur fyrir tímabilið júlí 2018 – júní 2019

Magn (kg)

Tilboðsgjafi

7.000

Ekran ehf

Reykjavík, 11. júní 2018

Atvinnuvega- og nýsköpunarráð

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum