Hoppa yfir valmynd
2. júlí 2018 Innviðaráðuneytið

Umhverfismat samgönguáætlunar 2019-2033 til kynningar

Samgönguráð auglýsir nú umhverfismat tillögu að samgönguáætlun 2019-2033 til kynningar, í samræmi við lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Frestur til að gera athugasemdir við umhverfismatið er til og með 13. ágúst 2018.

Tillaga samgönguráðs að samgönguáætlun er unnin í samræmi við lög nr. 33/2008 um samgönguáætlun. Þar er mörkuð stefna og markmið fyrir allar greinar samgangna næstu fimmtán árin. Með umhverfismatinu hafa verið skilgreind helstu áhrif sem kunna að verða vegna samgönguáætlunar og aðgerðir sem ráðast þarf í til að tryggja að dregið verði úr líklegum neikvæðum umhverfisáhrifum áætlunarinnar.

Í drögum að tillögu að samgönguáætlun 2019-2033, sem voru til grundvallar umhverfismatinu, koma fram markmið og áherslur áætlunarinnar auk stærri framkvæmda sem eru í undirbúningi og skoðun. Gerður er fyrirvari um að það ráðist af fjármagni og framvindu undirbúnings í hvaða framkvæmdir verður hægt að ráðast á tímabilinu.

Umhverfismat samgönguáætlunar er kynnt bæði hér á vefnum og í samráðsgáttinni, samradsgatt.is. Þá liggur það frammi til kynningar ásamt drögum að samgönguáætlun hjá eftirtöldum samgöngustofnunum

  • Samgöngustofu, Ármúla 2, 108 Reykjavík
  • Vegagerðinni, Borgartúni 5-7, 105 Reykjavík

Athugasemdir skal senda gegnum samráðsgáttina. Einnig er unnt að senda athugasemdir bréfleiðis, merktar umhverfismat, á samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, Sölvhólsgötu 7, 101 Reykjavík eða með tölvupósti á netfangið [email protected]. Frestur til að gera athugasemdir við umhverfismat samgönguáætlunar er, sem fyrr segir,til og með 13. ágúst 2018.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum