Ársskýrslur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fyrir árið 2017
Ársskýrslur ráðherra eru nú birtar í fyrsta skipti samkvæmt 62. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál. Í lögunum er kveðið á um að hver ráðherra skuli birta slíka skýrslu þar sem gera skal grein fyrir útgjöldum málefnasviða og málaflokka og bera saman við fjárheimildir fjárlaga. Þá skal í ársskýrslunum gera grein fyrir fjárveitingum til einstakra ríkisaðila og verkefna og leggja mat á ávinning af þeim með tilliti til aðgerða og markmiða sem sett hafa verið fram í fjármálaáætlun. Ársskýrslunum er þannig ætlað að stuðla að auknu gagnsæi um ráðstöfun og nýtingu fjármuna og vera um leið traustur grundvöllur fyrir umræðu um stefnumörkun og forgangsröðun hins opinbera.
- Ársskýrsla ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 2017
- Ársskýrsla sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra 2017
- Allar ársskýrslur ráðherra 2017
Markmiðið með ársskýrslunum er að fyrir liggi heildstæð og greinargóð samantekt um þróun útgjalda og mat á árangri í samanburði við sett markmið í því skyni að skýra samhengi fjármuna og stefnumótunar. Þannig verði tryggð góð yfirsýn og eftirfylgni með framgangi settra markmiða í fjármálaáætlun á einstökum málefnasviðum sem ráðherrar bera ábyrgð á.
Vakin er athygli á því að ársskýrslurnar eru birtar með fyrirvara um fjárhæðir þar sem endanlegur ríkisreikningur ársins lá ekki fyrir við gerð þeirra. Því er mögulegt að fjárhæðir í skýrslunum geti tekið einhverjum breytingum við lokafrágang ríkisreiknings og verða skýrslurnar þá uppfærðar eftir því sem við á.