Hoppa yfir valmynd
12. október 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Velferðarráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka vegna verkefna á sviði félagsmála

Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum um verkefni sem falla undir verkefnasvið ráðuneytisins á sviði félagsmála. Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem hljóta styrki á fjárlögum eða falla undir sjóði ráðuneytisins eða samninga sem gerðir hafa verið við ráðuneytið.

Reglur um úthlutun styrkja sem félags- og jafnréttissmálaráðherra veitir samkvæmt safnliðum fjárlaga hverju sinni.

Veittir eru styrkir til afmarkaðra verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf samkvæmt áherslum ráðherra hverju sinni. Styrkir eru ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Þá má m.a. veita til verkefna sem felast í því að:

  1. Útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi.
  2. Vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna.
  3. Bjóða upp á stuðning og ráðgjöf.

Veittir eru styrkir til félagasamtaka sem starfa á sviði endurhæfingar, málefna fatlaðs fólks, forvarna, fræðslu og fjölskyldu- og jafnréttismála.

Að þessu sinni verður lögð áhersla á verkefni sem lúta að málefnum barna og fjölskyldna, sérstaklega þau sem snerta snemmtæka íhlutun. 

Ekki eru veittir styrkir til rekstrar. Með rekstri er m.a. átt við rekstur skrifstofu, þ.m.t. greiðslu húsaleigu.

Mat á umsóknum
Starfshópur metur styrkhæfi umsókna og gildi þeirra fyrir málefnasvið ráðuneytisins. Mat á umsóknum skal einkum byggjast á eftirtöldum sjónarmiðum eftir því sem við á:

  1. Gildi og mikilvægi verkefnis fyrir viðkomandi málaflokk.
  2. Að umsækjanda muni takast að ná þeim markmiðum sem að er stefnt.
  3. Að verkefnið sé byggt á faglegum grunni.
  4. Að gerð sé grein fyrir því í umsókn hvernig staðið skuli að mati á árangri.
  5. Fjárhagsgrundvelli verkefnis og/eða hvort umsækjandi hafi hlotið aðra styrki til sama verkefnis.
  6. Eigna- og fjárhagsstaða umsækjanda.

Hafi umsækjandi áður fengið styrk frá velferðarráðuneytinu til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd þess verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina.

Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 12. nóvember 2018.

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti er lokið verður ekki tekin til umfjöllunar.
Úthlutun fer fram eigi síðar en 1. febrúar 2019.

Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins (http://minarsidur.stjr.is)

Innskráning á mínar síður – þrjár leiðir:

  1. Auðkenning með rafrænum skilríkjum á vef Island.is.
  2. Auðkenning með Íslykli á vef Island.is.
  3. Notandi velur flipann Nýskráning og skráir sig á vefinn á kennitölu sinni, gefur upp fullt nafn, heimilisfang og netfang og ákveður síðan lykilorð.

Hafi notandi sótt um áður á Mínum síðum velur hann flipann Innskráning og skráir sig inn með einhverri ofangreindra aðferða. Undir flipanum Eyðublöð eru eyðublöð flokkuð eftir ráðuneytum og stofnunum. Athugið að merkja við velferðarráðuneytið. Þar undir er umsóknareyðublaðið Styrkur af safnliðum fjárlaga 2019 – félagsmál.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um umsóknir á rafrænum eyðublöðum er að finna á vef ráðuneytisins.

Velferðarráðuneytinu 12. október 2018.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum