Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2018 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðherra fylgir forseta Íslands til Lettlands

Frá fundi forsetanna í forsetahöllinni í Riga í dag. - myndSendiráð Íslands í Helsinki

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fylgir forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, í opinberri heimsókn til Lettlands sem hófst í dag. Heimsóknin stendur til 18. nóvember næstkomandi.

Meðal viðburða í ferðinni má nefna opinbera móttökuathöfn við forsetahöllina í Riga, fund með forseta landsins, fund með forseta þingsins og loks fund með utanríkisráðherra.

Þá mun forseti Íslands og umhverfis- og auðlindaráðherra taka þátt í málstofu um samskipti Íslands og Lettlands á sviði menningar, stjórnmála og viðskipta laugardaginn 17. nóvember og á sunnudag taka þeir þátt í viðburðum sem tengjast eitt hundrað ára afmæli lýðveldis Letta.

Umhverfis- og auðlindaráðherra fundaði að auki með Kaspars Gerhards, umhverfisráðherra Lettlands í Riga í dag og heimsækir á morgun Tervete garðinn sem er vinsælt friðlýst svæði suðvestur af Riga.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum