Hoppa yfir valmynd
20. nóvember 2018 Innviðaráðuneytið

Uppbygging samgangna á höfuðborgarsvæðinu

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Viðræðuhópur um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu hefur skilað niðurstöðum sínum til ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
 
Markmiðið með starfi hópsins var að leggja grunn að samkomulagi um fjármagnaða áætlun um fjárfestingar í stofnvegum og kerfi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.
 
Hópurinn skilaði sameiginlegri niðurstöðu um forgangsröðun framkvæmda við uppbyggingu stofnvega, Borgarlínu og stofnstígakerfis hjólreiða á næstu fimmtán árum og verður niðurstaðan kynnt umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis og lagt til að tekið verði tillit til hennar við mótun samgönguáætlunar sem nú liggur fyrir Alþingi. Á fundinum sammæltust fulltrúar ríkis og sveitarfélaga um að hefja viðræður um frekari útfærslu þeirra tillagna sem fram koma í skýrslunni m.a. varðandi fjármögnun uppbyggingar innviða samgangna. Lagt verður af stað í þær viðræður með það að markmiði að þeim ljúki næsta vor.
 
Niðurstöður viðræðuhópsins verða gerðar opinberar í næstu viku að lokinni umfjöllun í ríkisstjórn og samhliða umfjöllun í bæjarráðum og borgarráði.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum