Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2019 Utanríkisráðuneytið

Deiliskipulag öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli

Mörk flugvallarsvæðis, svæði A, og öryggissvæðis - mynd

Utanríkisráðuneytið hefur falið Landhelgisgæslu Íslands að vinna deiliskipulag fyrir öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli. Í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga er unnin lýsing fyrir deiliskipulagið.

Deiliskipulagið fjallar m.a. um afmörkun nýrra svæða fyrir hættulegan farm, svæði fyrir skammtíma gistiaðstöðu, efnisvinnslusvæði, gistisvæði, geymslusvæði og aðra landnotkun og starfsemi, svo sem þyrlupall og girðingar.

Skipulagslýsingin

Ábendingar og athugasemdir skulu berast skriflega og má skila þeim til Landhelgisgæslu Íslands, b.t. Sveinn Valdimarsson, skipulagsfulltrúa, Þjóðbraut 1, 235 Keflavíkurflugvöllur eða í tölvupósti á [email protected]

Frestur til að skila athugasemdum er til 6. febrúar 2019.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum