Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Nýtt skipurit félagsmálaráðuneytisins

Félagsmálaráðuneytið - mynd

Barna- og húsnæðismál  fá aukið vægi í starfsemi ráðuneytisins

 

Nýtt skipurit hins nýja félagsmálaráðuneytis tók gildi í dag 1. febrúar.  Ráðuneytinu verður nú skipt upp í fjórar fagskrifstofur og þar fá barna- og húsnæðismál meira vægi en áður hefur verið. Er það í samræmi við mikilvægi málaflokkanna og viðfangsefnin framundan. Einnig er það í beinu samhengi við áherslur Ásmundar Einars Daðasonar sem frá áramótum ber titilinn félags- og barnamálaráðherra.   Með nýju skipuriti verður innleitt verklag verkefnisstjórnunar í daglegu starfi og skipuð vinnuteymi um einstök verkefni sem eru aðkallandi og mörkuð í upphafi og enda.  Teymin geta verið fleiri eða færri, allt eftir viðfangsefnum og álagi hverju sinni.  Þau munu skipa sérfræðingar af fagskrifstofum ráðuneytisins og sérfræðingar úr stofnunum ráðuneytisins ef aðstæður krefjast.

Fagskrifstofur ráðuneytins verða sem hér segir:

  1. Skrifstofa barna- og fjölskyldumála.
  2. Skrifstofa húsnæðis og lífeyrismála.
  3. Skrifstofa vinnumarkaðar og starfsendurhæfingar.

Þá starfar fagskrifstofa fjárlaga sem stoðdeild þvert á allar aðrar fagskrifstofur ráðuneytisins auk Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar 

GEF/Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar er sérstök ráðuneytisstofnun sem starfar á forræði ráðuneytisins en starfar sjálfstætt og óháð ráðuneytinu að öðru leyti.

Við uppskiptingu velferðarráðuneytisins sl. áramót var ákveðið að innri starfsemi ráðuneytisins verði innt af hendi hjá heilbrigðisráðuneytinu en að félagsmálaráðuneytið kaupi þá þjónustu af heilbrigðisráðuneytinu samkvæmt þremur þjónustusamingum sem verið er að ganga frá.  Þeir taka til:

  1. Stoðþjónustu og hlutdeild í sameiginlegum kostnaði – m.a. bókhalds og rekstrarþjónusta, launaumsjón, málaskrá, mötuneyti og húsnæði
  2. Þjónustu hagmála – m.a.  gerð reiknilíkana og kostnaðargreiningar, framsetning tölulegra gagna og skýrslugerð og
  3. Þjónustu mannauðsmála – m.a. ráðgjöf og stuðning við stjórnendur í mannauðsmálum, fræðslustarf, starfsþróun, móttaka nýrra starfsmanna, innri vefur og innleiðingu breytinga.

Á næstunni verða störf hinna þriggja nýju fagskrifstofustjóra auglýstar til umsóknar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum