Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Um 790 hjúkrunarrými á framkvæmdaáætlun til ársins 2023

Frá undirritun samnings um byggingu 60 rýma hjúkrunarheimilis á Húsavík 22. febrúar sl.  - myndHeilbrigðisráðuneytið

Alls eru 790 hjúkrunarrými á framkvæmdaáætlun til ársins 2023, þar af er fjölgun um rúmlega 580 rými og endurbætur á yfir 200 rýmum. Ítarlega er fjallað um uppbyggingu á þessu sviði og hvernig þessi mál hafa þróast frá árinu 2009 í skriflegu svari Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra við fyrirspurn á Alþingi frá Þorsteini Víglundssyni sem birt var í dag.

Eins og segir í svari ráðherra var í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008 ráðist í aðgerðir til að draga saman útgjöld í heilbrigðiskerfinu. Hjúkrunarrýmum var fækkað þar sem þörfin var talin minnst eða rými ekki í notkun. Í einhverjum tilvikum forgangsröðuðu heilbrigðisstofnanir verkefnum þannig að þær fækkuðu hjúkrunarrýmum og nýttu fjármunina til annarra verkefna í kjarnastarfsemi sinni og loks voru dæmi um að hjúkrunarheimilum væri lokað vegna ófullnægjandi aðbúnaðar eða vegna ákvörðunar forstöðumanns um að hætta rekstri.

Miklar endurbætur en lítil fjölgun hjúkrunarrýma þar til á þessu ári

Uppbygging hjúkrunarheimila undanfarin 10 ár hefur að mestu falist í nauðsynlegum endurbótum á eldri rýmum. Byggð hafa verið 392 hjúkrunarrými og 302 verið aflögð. Fjölgun nemur því einungis 90 hjúkrunarrýmum á þessum 10 árum, þar af voru 40 þeirra vígð á þessu ári á Seltjarnarnesi. Næstu áfangar felast í opnun nýs Sólvagns í Hafnarfirði og hjúkrunarheimilis við Sléttuveg í Reykjavík með samtals 100 nýjum rýmum.

Mikil uppbygging framundan

Samkvæmt framkvæmdaáætlun verður 140 rýma fjölgun nú í ár, við opnun Seltjarnar á Seltjarnarnesi, Sólvangs í Hafnarfirði og hjúkrunarheimilis við Sléttuveg í Reykjavík.

Árið 2020 verður fjölgun hjúkrunarrýma um 60 við opnun nýs hjúkrunarheimilis í Árborg sem áætlað er að opni í lok ársins 2020. Hluti af þeim rýmum koma í stað þeirra rýma sem lokað var á Kumbaravogi og á Blesastöðum árin 2016 og 2017.

Árið 2021 verður fjölgun hjúkrunarrýma um 45 samkvæmt framkvæmdaáætlun þegar nýtt hjúkrunarheimili opnar á Húsavík og á Höfn í Hornafirði með endurbótum og fjölgun rýma en endurbótum á hjúkrunarheimilinu í Stykkishólmi á að ljúka það ár.

Árið 2022 er gert ráð fyrir að nýtt hjúkrunarheimili opni við Boðaþing í Kópavogi sem dregist hefur í 2 ár vegna dómsmáls.

Á yfirstandandi framkvæmdaáætlun sem nær fram til 2023 er ekki komin tímasetning á verklok þeirra  hjúkrunarheimila sem áformað er að byggja í Reykjanesbæ, Mosfellsbæ, á Akureyri og á höfðuðborgarsvæðinu en framkvæmdirnar munu fela í sér fjölgun hjúkrunarrýma sem nemur 276 rýmum og endurbætur á 30 rýmum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum