Hoppa yfir valmynd
3. maí 2019 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins.

Með vísan til samnings milli Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og til reglugerðar nr. 390/2019 um úthlutina, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á landbúnaðarvörum, upprunnum í ríkjum Evrópusambandsins og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. júlí – 31. desember 2019

Vöruliður:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

kg

%

kr./kg

0202

Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst

01.07. - 31.12.19

199.000

0

0

0203

Svínakjöt, fryst

01.07. - 31.12.19

350.000

0

0

0207

Kjöt af alifuglum, fryst

01.07. - 31.12.19

428.000

0

0

ex0207

Kjöt af alifuglum, fryst lífrænt ræktað/lausagöngu

01.07. - 31.12.19

100.000

0

0

0210

Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig finmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum (**)

01.07. - 31.12.19

50.000

0

0

ex 0406

Ostur og ystingur (**)

01.07. - 31.12.19

65.000

0

0

0406

Ostur og ystingur

01.07. - 31.12.19

115.000

0

0

1601

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum

01.07. - 31.12.19

125.000

0

0

1602

Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum

01.07. - 31.12.19

145.000

0

0

 

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla 

 

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 448/2012.

 

Ráðuneytið vekur athygli á því að hinn 1. maí 2018 tók gildi nýr viðskiptasamningur Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur en í samningnum er m.a. ákvæði um stækkun tollkvóta. Í ljósi þess hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ákveðið að úthlutun frá 1. júlí nk. verði til sex mánaða, þ.e. vörumagn vegna seinni hluta ársins 2019. Með þessari framkvæmd er þess vænst að innflutningur dreifist með jafnari hætti og verði í betra samræmi við þarfir íslensks markaðar. Enn fremur munu þeir sem fá ekki úthlutað að þessu sinni eiga að nýju möguleika á úthlutun eftir sex mánuði.

 

Skriflegar umsóknir skulu berast til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, 5. hæð, eða á [email protected] fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 14. maí 2019.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 
3. maí 2019.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið Sþ: 15 Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum