Hoppa yfir valmynd
9. maí 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mikilvægt að hlusta á raddir barna

Hilmar og Bergdís afhentu ráðherra skýrsluna - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, fékk í dag afhenta skýrslu sérfræðihóps fatlaðra barna en þar er að finna ábendingar um það sem betur má fara þegar kemur að málefnum fatlaðra barna og unglinga. Þær snúa meðal annars að aðgengi, ferðaþjónustu, upplýsingagjöf, tómstundastarfi, fordómum, virðingu í samskiptum, einelti og ofbeldi og er nánar lýst í skýrslunni.

„Þetta eru afskaplega góðar ábendingar sem mikilvægt er að taka til skoðunar. Þær sýna fram á hversu gagnlegt það er að hlustað sé á raddir þeirra sem málin raunverulega varða,“ sagði Ásmundur Einar.

Síðastliðna áratugi hefur mikilvægi þess að leitað sé eftir sjónarmiðum og reynslu barna verið áréttað og bent á að börn og unglingar séu sérfræðingar í eigin lífi og hafi þekkingu og skoðanir sem brýnt er að fanga upplýsingar um. Í takt við áherslur Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hefur einnig verið bent á að ekki nægi að hlusta á börn heldur þurfi að taka skoðanir þeirra og sjónarmið til greina þegar teknar eru ákvarðanir sem varða börn.

Í 23. grein samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og í 7. grein samnings Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er fjallað um rétt fatlaðra barna og mikilvægi þess að aðgengi þeirra að samfélagsþátttöku sé tryggt til jafns við ófatlaða jafnaldra þeirra. Engu að síður hafa rannsakendur innan fötlunarfræða bent á að hingað til hafi lítið verið leitað eftir sjónarmiðum og reynslu fatlaðra barna. Ástæðurnar megi meðal annars rekja til þess að rannsakendur ofmeti vinnu og tíma sem þarf til að tryggja aðgengi fatlaðra barna að þátttöku í rannsóknum og viðtekinna viðhorfa sem vanmeta gæði og réttmæti þess sem fötluð börn kunna að hafa fram að færa. Af þessum sökum hefur upplýsingum um fötluð börn, reynslu þeirra og sjónarmið gjarnan verið aflað frá foreldrum þeirra en ekki þeim sjálfum.

Árið 2018 veitti Ásmundur Einar embætti umboðsmanns barna styrk á grundvelli framkvæmdaáætlunar í málefnum fatlaðs fólks til að hrinda af stað verkefni sem fékk heitið Raddir fatlaðra barna. Leitað var samstarfs við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands um framkvæmd verkefnisins. Settur var á stofn fyrrnefndur sérfræðihópur fatlaðra barna og unglinga, að sænskri fyrirmynd, með það að markmiði að skapa rými og tækifæri fyrir fötluð börn og unglinga til að ræða málefni að eigin vali og koma með ábendingar byggðar á eigin reynslu og skoðunum. Þátttakendur voru fundnir með aðstoð félagasamtaka fatlaðs fólks og annarra sem starfa í málaflokknum. Þeir voru sex talsins á aldrinum 13-17 ára. Þrír þátttakenda voru með hreyfihömlun og þrír með þroskahömlun.

  •   - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum