Hoppa yfir valmynd
12. júní 2019

Kennari í vélstjórnargreinum

                  

Laus staða við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja

Umsóknarfrestur um áður auglýsta kennarastöðu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja  í vélstjórnargreinum er framlengdur til og með 1. júlí. Ráðningartími er frá 1. ágúst 2019.

Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en umsókn með upplýsingum um menntun (ljósrit af prófskírteini fylgi) og starfsreynslu skal skila í tölvupósti til skólameistara á netfangið [email protected] eigi síðar en 1. júlí 2019. Leitað er að framhaldsskólakennara með menntun í viðkomandi fagi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkissjóðs og KÍ skv. nánari útfærslu í stofnanasamningi skólans. 

Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Sakavottorð fylgi umsókn.

Nánari upplýsingar má fá í síma 421-3100 eða í tölvupósti hjá Kristjáni Ásmundssyni skólameistara, [email protected] og Guðlaugu Pálsdóttur aðstoðarskólameistara, [email protected].

Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Á heimasíðu skólans, www.fss.is, má finna frekari upplýsingar og sjá myndir úr skólalífinu.                                                                  


Skólameistari

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum