Hoppa yfir valmynd
12. júní 2019

​Lögreglumenn

Lögreglumenn

Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum eru lausar til umsóknar 10 stöður lögreglumanna með starfsstöð í almennri deild og flugstöðvardeild. Skipað verður í stöðurnar til 5 ára frá og með 15. september 2019.

Lögreglustjóraembættið á Suðurnesjum er annað stærsta lögregluembætti landsins og er starfssvæðið er allt Reykjanesið. Þar er m.a. stærsti alþjóðaflugvöllur landsins sem leiðir af sér að lögreglumenn á Suðurnesjum fást við margs konar fjölbreytt og krefjandi verkefni. Það reynir á margs konar hæfni og menn öðlast reynslu sem erfitt er að fá annars staðar innan lögreglunnar. 

Helstu verkefni og ábyrgð
Kveðið er á um réttindi og skyldur lögreglumanna í lögum réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Almennar upplýsingar um verksvið og ábyrgð lögreglumanns má finna í 11. gr. reglugerðar um starfstig innan lögreglunnar nr. 1051/2006. 

Hlutverk lögreglu er að gæta almannaöryggis og tryggja réttaröryggi; stemma stigu við afbrotum og vinna að uppljóstran brota; greiða götu borgaranna og veita yfirvöldum aðstoð við framkvæmd starfa sinna og að halda uppi almannafriði og allsherjarreglu.

Hæfnikröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Góðir hæfileikar til mannlegra samskipta, jákvæðni, skipulagshæfileikar, frumkvæði og nákvæmni í vinnubrögðum eru mikilvægir eiginleikar. Umsækjandi þarf að standast bakgrunnskoðun flugverndar með jákvæðri umsögn.

Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Starfið er vaktavinna og unnið eftir 5-5-4 kerfi á 12 tíma vöktum.

Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið með því að smella á hlekkinn hér að neðan og láta ferilskrá fylgja með sem viðhengi. Einungis er tekið við umsóknum með þessum hætti.

Athygli umsækjenda er vakin á heimild til að skoða sakaferil umsækjenda um starf í lögreglu en í 28. gr. a. Lögreglulaga nr. 90/1996 segir: "Engan má skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu".

Einungis er óskað eftir umsóknum frá einstaklingum sem lokið hafa lögreglunámi.

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
 
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.07.2019

Nánari upplýsingar veitir
Bjarney Sólveig Annelsdóttir - [email protected] - 4442200
Sigurgeir Ómar Sigmundsson - [email protected] - 4442200


Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Lögr. Almenn deild
Hringbraut 130
230 Keflavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
  

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum