Starfsmaður í ræstingu og búri
Starfsmaður í ræstingu og búri
Laus er til umsóknar staða starfsmanns í ræstingu og búri á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Um vaktavinnu er að ræða og veitist staðan frá 1. september 2019.
Næsti yfirmaður er Þóra Ester Bragadóttir forstöðuhjúkrunarfræðingur lyflækningadeildar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn störf við ræstingar og í búri.
Hæfnikröfur
Umsækjendur skulu hafa almenna þekkingu, auk þess sem lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu. Íslenskukunnátta er skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Eining - Iðja hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is
Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um nám og starfsferil.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI.
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 01.07.2019
Nánari upplýsingar veitir
Þóra Ester Bragadóttir - [email protected] - 4630100
Hulda Sigríður Ringsted - [email protected] - 4630100
Sjúkrahúsið á Akureyri
Lyflækningadeild
v/Eyrarlandsveg
600 Akureyri
Smelltu hér til að sækja um starfið