Hoppa yfir valmynd
24. júní 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Samningur um meðferð fyrir karla og konur sem beita ofbeldi

Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og Andrés Proppé Ragnarsson sálfræðingur undirrituðu í dag nýjan samstarfssamning félagsmálaráðuneytisins og Heimilisfriðar, en Heimilisfriður er meðferðarúrræði fyrir einstaklinga sem beita ofbeldi í nánum samböndum. Með samningnum vill ráðuneytið tryggja sérhæfða sálfræðiþjónustu fyrir konur og karla sem beitt hafa maka sína ofbeldi. Úrræðið hefur staðið til boða um árabil á grundvelli samnings við stjórnvöld og gekk áður undir nafninu Karlar til ábyrgðar. Gildistími samningsins er eitt ár.

Hjá Heimilisfriði geta gerendur, karlar og konur, sótt sálfræðimeðferð og er ýmist boðið upp á einstaklingsviðtöl eða hópmeðferðir. Þjónustunni er ætlað að draga úr líkum á frekari ofbeldishegðun með því að veita skjólstæðingum aðstoð við að þróa leiðir til að takast á uppbyggilegan hátt við ágreining og erfiðleika í samskiptum. Í meðferðinni er miðað að því að gerendur viðurkenni ábyrgð á hegðun sinni og vinni að breytingum. Lögð er áhersla á að viðkomandi þiggi aðstoðina af fúsum og frjálsum vilja og sjái sjálfur um að panta viðtal. Undantekning á þeirri meginreglu er til dæmis þegar barnaverndarnefndir, félagsþjónusta eða lögregla vísa málum til Heimilisfriðar. Heimilisfriður býður einnig upp á þjónustu á Norðurlandi.

Í samningnum er meðal annars gerð krafa um sérþekkingu starfsfólks á málflokknum og reglulega miðlun upplýsinga til ráðuneytisins. Jafnframt kveður samningurinn á um að ráðuneytið veiti þeim sérfræðingum sem að verkefninu koma styrk til þjálfunar eða endurmenntunar erlendis til að styrkja þekkingu þeirra og stuðla að þróun þjónustunnar og frekari gæðum hennar.

Verkefnið liður í framkvæmdaáætlun stjórnvalda í jafnréttismálum frá 2016 til 2019.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum