Hoppa yfir valmynd
8. júlí 2019 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfis- og auðlindaráðuneyti og Framkvæmdasýsla ríkisins í aukið samstarf

Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra - mynd

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra og Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins (FSR) undirrituðu sl. föstudag yfirlýsingu um aukið samstarf milli ráðuneytisins og Framkvæmdasýslunnar vegna uppbyggingar innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.

Lagt hefur verið upp með af hálfu stjórnvalda að á árunum 2019-2021 verði gert ráð fyrir um 3 milljarða framlagi til verkefna til verndar náttúru og uppbyggingar innviða á ferðamannastöðum. Nokkur af stærri verkefnum í landsáætlun um uppbyggingu innviða eru nú þegar í undirbúningi og framkvæmd hjá FSR en með samstarfinu er gert ráð fyrir aukinni faglegri aðkomu stofnunarinnar að þessum mikilvægu verkefnum.

Með samstarfinu er stefnt að því að bæta enn frekar undirbúning að uppbyggingu innviða, auka yfirsýn yfir verkefni og samræmingu milli þeirra og leitast við að framkvæmd þeirra verði hagkvæmari og skilvirkari.

Í samstarfinu verður lögð megináhersla á að fá góða yfirsýn um verkefni sem falla undir lög um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum. Til að byrja með verður horft til uppbyggingar innviða í Vatnajökulsþjóðgarði til þess að móta verkefnið.

Samstarfsyfirlýsingin gerir einnig ráð fyrir að hægt verði að nýta verkferla og vinnulag sem fyrir eru vegna annarra svipaðra eða sambærilegra verkefna á vegum ráðuneytisins svo og annarra verkefna á vegum stjórnvalda sem ekki heyra undir landsáætlunina.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum